Fótbolti

Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Barcelona.
Eiður Smári í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir Basel á heimavelli í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

Bæði hann og Pedro meiddust með landsliðum sínum í upphafi síðasta mánaðar og var hvorugur með í 4-1 sigri Barcelona á Malaga um helgina þó svo að læknar hafi gefið grænt ljós á þátttöku þeirra.

Þeir Dani Alves og Yaya Toure eru báðir hvíldir í kvöld en Eiður Smári spilaði síðast með Börsungum er liðið vann 6-1 sigur á Atletico Madrid.

Hópurinn: Valdés, Pinto, Henry, Márquez, Xavi, Piqué, Iniesta, Puyol, Cáceres, Sylvinho, Bojan, Eto'o, Messi, Hleb, Eiður Smári, Sergio Busquets, Víctor Sánchez og Pedro.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×