Fótbolti

Alves á leið til Barcelona

NordcPhotos/GettyImages

Brasilíski bakvörðurinn Daniel Alves hjá Sevilla staðfesti í útvarpsviðtali á Spáni að hann væri á leið til Barcelona í sumar. Alves er almennt álitinn einn besti sóknarbakvörður heimsins í dag.

"Ég er mjög ánægður með að vera á leið til félags á borð við Barcelona og ég vona að þar geti ég uppfyllt drauma mína um að vinna titla," sagði Alves í útvarpsviðtalinu.

Spænskir fjölmiðlar segja að Alves muni ganga í raðir Barcelona fyrir nálægt 30 milljónir evra, en hann mun ætla að skrifa undir fjögurra ára samning á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×