Tónlist

Langar að gefa út aðra plötu

Ólafía Hrönn myndi vilja hvíla sig á leiklistinni og sinna söngnum alfarið. Hún semur tónlist og langar að gefa út aðra plötu.
fréttablaðið/Stefán
Ólafía Hrönn myndi vilja hvíla sig á leiklistinni og sinna söngnum alfarið. Hún semur tónlist og langar að gefa út aðra plötu. fréttablaðið/Stefán
„Það eru þrettán ár síðan ég gaf út jazzplötuna Koss með Tómasi R. Einarssyni og hef ekki verið að syngja með tríói síðan," segir leik- og söngkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Hún undirbýr nú dagskrá ásamt Ásgeiri Óskarssyni, Birni Thoroddsen og Gunnari Hrafnssyni sem þau munu fara með í grunnskóla og syngja.

„Þeir eru búnir að vera með þessa dagskrá í tíu ár og Egill Ólafsson söng upprunalega með þeim. Við byrjum í nóvember, en erum byrjuð að æfa og búin að hittast heilmikið. Við munum fara í grunnskóla og tökum gamla þjóðlagið Ljósið kemur langt og mjótt, láta það ferðast um hin ýmsu lönd og ég syng það í allskonar stílum. Þetta er svona tónlistarkennsla og svo er líka leikið og dansað," útskýrir Ólafía Hrönn sem er nú í óðaönn að undirbúa sýninguna Utan gátta, sem verður frumsýnd á föstudag í Þjóðleikhúsinu. Auk þess stefnir hún á frekara tónleikahald þar sem hún mun syngja nokkur af sínum uppáhalds lögum.

„Mér finnst svakalega skemmtilegt að syngja og væri til í að hvíla mig á leiklistinni til að sinna söngnum alfarið. Þótt ég vilji ekki fara frá leiklistinni væri rosalega gaman að geta gefið sig alla í þetta. Ég er alltaf að semja eitthvað og langar að gefa út aðra plötu. Mér finnst ég eiginlega þurfa að gefa út eina plötu enn," segir Ólafía Hrönn. - ag






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.