Íslenski boltinn

Elísabet hætt með Val

Elvar Geir Magnússon skrifar
Elísabet hefur unnið til margra verðlauna sem þjálfari. Mynd/E.Stefán
Elísabet hefur unnið til margra verðlauna sem þjálfari. Mynd/E.Stefán

Elísabet Gunnarsdóttir er hætt þjálfun Vals samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis. Elísabet hefur náð frábærum árangri með kvennalið Vals og gert liðið að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð.

Samningur Elísabetar og Freys Alexanderssonar, sem þjálfaði liðið með henni í sumar, dettur því úr gildi og óvíst er með framhaldið.

Tímabilinu lauk hjá Val í dag en þá lék liðið sinn síðasta Evrópuleik en því tókst ekki að komast áfram.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×