Fram aftur á toppinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2007 17:29 Eva Hrund Harðardóttir reynir að stöðva Rut Jónsdóttur HK-ing í leiknum í dag. Mynd/Daníel
Tveimur leikjum er lokið í N1-deild kvenna í dag en Fram vann góðan sigur á HK eftir að hafa verið undir lengst af í leiknum. Hk hafði yfir í hálfleik, 13-10, en það var ekki fyrr en undir lok leiksins að Fram skoraði þrjú mörk í röð og komst þannig í eins marks forystu, 25-24. Fram vann svo tveggja marka sigur, 27-25. Stella Sigurðardóttir skoraði níu mörk fyrir Fram og var markahæst en fimm markanna komu af vítalínunni. Hjá HK skoraði Anna Sif Pálsdóttir fjögur mörk, þar af fjögur af vítalínunni. Fram endurheimti þar með toppsætið í deildinni og hefur nú eins stigs forystu á Val. HK er enn í næstneðsta sætinu með fimm stig. Í hinum leiknum unnu Haukar sigur á Akureyri, 39-22. Eins og gefur til kynna var sigur Hauka afar öruggur en staðan í hálfleik var 21-11 fyrir heimamenn. Erna Þráinsdóttir skoraði níu mörk fyrir Hauka en markahæstar hjá Akureyri voru Auður Ómarsdóttir og Inga Dís Sigurðardóttir með fjögur mörk hvor. Bryndís Jónsdóttir varði ellefu skot í marki Hauka og Laima Milauskaite sex. Hjá Akureyri varði Emilía D. Sigmarsdóttir sex skot. Mörk Hauka: Erna Þráinsdóttir 9, Hind Hannesdóttir 7, Nína Kristín Björnsdóttir 6, Fanney Dögg Barkardóttir 5, Harpa Melsted 3, Ramune Pekarskyte 2, Sigrún Brynólfsdóttir 2, Inga Fríða Tryggvadóttir 2, Ausra Geciene 1, Erna Halldórsdóttir 1 og Sandra Stojkovic 1. Mörk Akureyrar: Auður Ómarsdóttir 4, Inga Dís Sigurðardóttir 4, Anna Morales 3, Harpa Baldursdóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Kara Rún Árnadóttir 2, Arna Valgerður Einarsdóttir 2, Emma Havin Davoody 1, Monika Rutkowska 1, Lilja Þórisdóttir 1. Akureyri er enn á botni deildarinnar án stig aen Haukar eru í fimmta sæti með þrettán stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Handbolti Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Handbolti „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Fótbolti Vann þrátt fyrir að vera búin að gera í brækurnar Sport Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Handbolti Taugakerfi Sóleyjar í verkfall eftir HM og fékk hún yfir 39 stiga hita Sport Gagnrýnir hómófóbísk ummæli pabbans um Ralf Schumacher Formúla 1 Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja Fótbolti Skúbbaði í miðju kynlífi Sport Fleiri fréttir Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Sjá meira