Fótbolti

Wenger hefur ekki áhyggjur

NordicPhotos/GettyImages

Arsene Wenger segist ekki hafa stórar áhyggjur af því hvaða mótherja Arsenal fær í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að ljóst varð að liðið náði ekki að landa efsta sætinu í riðlakeppninni.

Nokkur af bestu liðum Evrópu gætu því orðið mótherjar Arsenal í næstu umferð, en hann hefur ekki áhyggjur af því.

"Við spiluðum við Juventus á þessu stigi fyrir tveimur árum og sigruðum, en síðast mættum við PSV og töpuðum. Mótherjinn verður ekkert annað en góð prófraun fyrir liðið og þetta er bikarkeppni þar sem allt getur gerst. Ég hef trú á því að við getum unnið hvaða lið sem er," sagði Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×