Fótbolti

Þessi var fyrir stuðningsmennina

Benitez er guðsgjöf stuðningsmanna Liverpool
Benitez er guðsgjöf stuðningsmanna Liverpool NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, tileinkaði stuðningsmönnum liðsins 4-1 sigurinn á Porto í Meistaradeildinni í kvöld.

Stuðningsmenn Liverpool sýndu stuðnings sinn við stjórann í deilunum við eigendur félgsins með því að syngja nafn hans og marsera með fána með stuðningsyfirlýsingum fyrir leikinn.

"Fyrst af öllu vil ég þakka stuðningsmönnunum fyrir sitt framlag. Þeir áttu skilið að fá hagstæð úrslit í kvöld og mig langar að tileinka þeim sigurinn. Þetta var erfiður elikur á móti góðu liði. Við vorum undir mikilli pressu en þetta varð auðveldara eftir að við skoruðum annað markið," sagði Benitez.

Nú þarf liði að ná hagstæðum úrslitum í Frakklandi gegn Marseille í lokaleiknum. "Við höfum gott sjálfstraust og ég sagði að við þyrftum að vinna þrjá leiki í röð. Nú erum við búnir að vinna tvo og þá er bara að halda áfram og klára dæmið," sagði Benitez.

Hann var spurður út í stuðningsyfirlýsingu stuðningsmanna Liverpool. "Stuðningsmennirnir eru alltaf frábærir en það sem mestu máli skipti í kvöld var að við unnum leikinn. Ég er stoltur af því að vera hérna og þakka stuðninginn, því ég vil vera hérna áfram. Ég á ekki í stríði við eigendur félagsins eða nokkurn annan, við munum ræða málin og reyna að horfa fram á við," sagði Spánverjinn í samtali við Sky í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×