Fótbolti

Rosenborg að koma á óvart

Elvar Geir Magnússon skrifar
Trond Henriksen tók nýverið við þjálfun Rosenborg. Hann stýrði liðinu til óvænts sigurs á Spáni í kvöld.
Trond Henriksen tók nýverið við þjálfun Rosenborg. Hann stýrði liðinu til óvænts sigurs á Spáni í kvöld.

Ronald Koeman fékk svo sannarlega ekki óskabyrjun sem þjálfari spænska liðsins Valencia. Hann stýrði liðinu í fyrsta sinn í kvöld þegar það tók á móti norska liðinu Rosenborg og tapaði 0-2. Steffen Iversen skoraði bæði mörkin.

Svo sannarlega óvæntur sigur hjá Rosenborg sem er spútniklið Meistaradeildarinnar til þessa. Rosenborg vann einnig fyrri leikinn gegn Valencia.

Rosenborg er með sjö stig í öðru sæti B-riðils, aðeins stigi á eftir Chelsea. Valencia og Schalke eru með þrjú stig hvort lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×