Fótbolti

Vinn ekkert ef ég fer til Newcastle

NordicPhotos/GettyImages

Serbneski landsliðsmaðurinn Ivica Dragutinovic hefur hafnað mögulegu tilboði um að ganga í raðir Newcastle með því að framlengja samning sinn við Sevilla á Spáni til ársins 2011.

Þessi 31 árs gamli varnarjaxl hefur verið orðaður mikið við Newcastle undanfarið, en hann segir ekki hafa komið til greina að fara þangað.

"Ég hefði eflaust fengið mikið hærri laun ef ég hefði farið til Newcastle, en þar eru litlir möguleikar á að vinna eitt eða neitt svo ég ákvað að vera áfram hjá Sevilla og spila í Meistaradeildinni - og vinna jafnvel titil," sagði Serbinn á heimasíðu Sevilla í dag.

Dragutinovic gekk í raðir Sevilla frá Standard Liege árið 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×