Fótbolti

Barcelona gerði jafntefli við Valladolid

NordicPhotos/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu 20 mínúturnar í kvöld þegar Barcelona þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Valladolid á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni.

Heimamenn komust yfir snemma leiks en Ronaldinho jafnaði fyrir Barcelona, sem er nú fjórum stigum á eftir Real Madrid sem er á toppnum.

Eiður Smári kom sem fyrr segir inn sem varamaður á 69. mínútu og var reyndar nálægt því að setja mark sitt á leikinn þegar markvörður Valladolid varði vel frá honum hörkuskalla rétt eftir að honum var skipt inn á. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×