Fótbolti

Frábær sóknarleikur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í kvöld.
Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk í kvöld.

„Sóknarleikurinn sem við sýndum í kvöld var hreint frábær. Í raun hefðum við átt að skora miklu fleiri mörk," sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 4-2 útisigurinn gegn Dynamo Kiev.

„Dynamo liðið lék mun betur í seinni hálfleiknum en það gerði í þeim fyrri og þá fór að reyna meira á vörnina. Ég er ánægður með mína menn, sama hvaða leikkerfi við spilum þá eru þeir fljótir að finna taktinn," sagði Sir Alex.

Manchester United er nánast komið áfram upp úr riðli sínum. Liðið er með fullt hús, hefur níu stig. Roma kemur næst með sex stig og Sporting Lissabon er með þrjú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×