Fótbolti

Real Madrid tapaði fyrsta leiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Riera skoraði fyrir Espanyol strax á annarri mínútu.
Riera skoraði fyrir Espanyol strax á annarri mínútu. Nordic Photos / AFP

Real Madrid tapaði í gær sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið lá fyrir Espanyol á úitvelli, 2-1.

Riera skoraði strax á annarri mínútu leiksins með laglegum skalla og Tamudo kom Espanyol í 2-0 á 53. mínútu.

Sergio Ramos minnktaði muninn á 90. mínútu eftir undirbúning Guti.

Real Madrid er engu að síður á toppi spænsku deildarinnar með nítján stig eftir átta leiki.

Villarreal og Valencia eru með átján stig og Barcelona með sautján. Börsungar töpuðu líka sínum fyrsta leik á tímabilinu í gær, fyrir Villarreal. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×