Erlent

Frakklandsforseti skilur við konu sína

Óli Tynes skrifar

Nicolas Sarkozy forseti Frakklands og eiginkona hans Cecilia hafa ákveðið að skilja. Þetta var upplýst í fréttatilkynningu frá skrifstofu forsetans. Þarmeð er bundinn endi á margra mánaða vangaveltur um samband þeirra hjóna.

Fréttirnar koma tæplega á óvart. Cecilia tók engan þátt í kosningabaráttu eiginmanns síns fyrr á þessu ári og greiddi honum ekki einusinni atkvæði sitt. Hún hefur aðeins þrisvar komið opinberlega fram með honum síðan hann varð forseti. Síðast var það í júlí.

Sarkozy er 52 ára gamall og Cecilia 49. Þau giftu sig árið 1996 og eiga tíu ára son. Þau skildu um tíma árið 2005, en tóku saman aftur á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×