Engar myndir fundust af Madeleine 16. október 2007 14:45 Síðasta myndin sem foreldrar Madeleine tóku af henni var við sundlaugarbakka hótelsins í Praia da Luz. MYND/AFP
Portúgalska lögreglan hefur ekki fundið neinar vísbendingar um Madeleine McCann meðal efnis á 150 tölvum grunaðra barnaníðinga . Vonast hafði verið til að komast á snoðir um hvarf stúlkunnar í tengslum við stærstu rannsókn lögreglunnar á barnaníðingum í landinu til þessa. Um 150 tölvur grunaðra barnaníðinga voru teknar á 80 heimilum í síðustu viku. Ein kenningin um hvarf stúlkunnar er sú að henni hafi verið rænt af barnaníðingi. Vonir um að lögreglunni tækist að komast á snoðir Maddie í þessari rannsókn urðu því að engu. Samkvæmt upplýsingum portúgalska dagblaðsins Correio de Manha voru margar myndanna af ungum börnum sem líktust Madeleine. Nýjasta tækni var notuð til að bera kennsl á sumar myndanna þar sem barnaníðingarnir höfðu brenglað þær til að breiða yfir ódæðin. Clarence Mitchell talsmaður McCann fjölskyldunnar sagði að niðurstaðan væri sú að þessi rannsókn mundi ekki leiða neitt af sér um hvarf stúlkunnar. Lögreglan í Portúgal hefur nú fengið niðurstöður rannsóknarstofu í Birmingham af hári og líkamsvökva sem talinn er vera af Madeleine. Þær hafa ekki verið kynntar fjölmiðlum. Sýnishornin voru tekin úr bílaleigubíl sem McCann fjölskyldan leigði í kjölfar hvarfs dóttur þeirra.
Madeleine McCann Mest lesið Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Baráttukonur minnast Ólafar Töru Innlent Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent Ógnaði fólki með barefli í bænum Innlent Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Allir farþegarnir látnir Hamas lætur þrjá gísla lausa Sjúkraflugvél hrapaði í Fíladelfíu Læknir ákærður fyrir að ávísa þungunarrofslyfi Trump leggur háa tolla á nágrannaþjóðirnar Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra Segja að flytja þurfi 2.500 börn frá Gasa til að bjarga lífi þeirra Nærri helmingur segir Danmörku standa ógn af Bandaríkjunum Búið að ná upp gögnum úr flugstjórnarklefa farþegavélarinnar Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Þyrlan í hefðbundnu æfingarflugi Merkel setur ofan í við arftaka sinn vegna stuðnings öfgahægrimanna Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Norska stjórnin gæti sprungið í dag Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Líf norsku stjórnarinnar hangir á bláþræði vegna fjórða orkupakkans Sjá meira