Milan bregst hart við banni Dida 12. október 2007 09:35 Dida lét bera sig af velli eftir kinnhestinn AFP
Forráðamenn AC Milan eru reiðir yfir ákvörðun Knattspyrnusambands Evrópu um að sekta Celtic um aðeins 12,500 pund vegna uppákomunnar í leik liðanna í Meistaradeildinni á meðan Dida markvörður hefur verið settur í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap. Celtic var dæmt til að greiða sekt fyrir að missa stuðningsmann inn á völlinn, en hann veittist að Dida og danglaði í hann um leið og hann hljóp af velli. Dida ýkti atvikið vel og lét bera sig af velli eins og hann hefði verið skotinn með haglabyssu. Celtic ætlar ekki að áfrýja þessari niðurstöðu enda eru allir á einu máli um að skoska félagið hafi sloppið ótrúlega vel frá þessu leiðinlega atviki. Ítalirnir eru hinsvegar mjög ósáttir við bannið sem Dida fær í kjölfarið. "Þessi niðurstaða er fáránleg og stenst engin rök. Ég hef ekkert á móti Celtic en ég er bara að reyna að átta mig á því hvað mönnum gengur til hérna þegar maður skoðar annars vegar atburðinn og hinsvegar afleiðingar sem hann getur haft í för með sér," sagði lögmaður ítalska félagsins.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Brazell ráðinn til Vals Íslenski boltinn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Sjá meira