Fótbolti

Við erum klárlega með betra lið en Chelsea

David Villa
David Villa NordicPhotos/GettyImages

Spænski landsliðsmaðurinn David Villa hjá Valencia fer ekki leynt með skoðanir sínar á Avram Grant og liði hans Chelsea fyrir viðureign liðanna í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

Villa segist ekki hafa trú á því að Chelsea geri neinar rósir undir stjórn Avram Grant og segir spænska liðið mun betra. Hann segir Chelsea hafa sýnt sér mikinn áhuga á sínum tíma.

"Chelsea vildi fá miklar upplýsingar um mig og það var greinilegt að Jose Mourinho vildi ólmur fá mig til Englands. Það varð svo ekkert úr því og kannski buðu þeir ekki í mig af því það voru einhverjar deilur meðal forráðamanna félagsins," sagði Villa. Hann er ekki hrifinn af Chelsea undir stjórn Avram Grant.

"Ég þekki Grant ekki neitt en hann er ekki einu sinni í sömu deild og Jose Mourinho. Ég horfði á Chelsea tapa fyrir United um daginn og þetta var ekki sama lið og við mættum í Meistaradeildinni forðum. Ég er ánægður að vera í herbúðum Valencia. Þetta er eitt stærsta félag í Evrópu og við erum sannarlega með betra lið en Chelsea," sagði Villa í samtali við News of the World um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×