Fótbolti

Schuster: AC Milan sigurstranglegast

Elvar Geir Magnússon skrifar
Bernd Schuster.
Bernd Schuster.

Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, segir að ítalska liðið AC Milan sé sigurstranglegast í Meistaradeild Evrópu á þessari leiktíð. „Ég sá þá vinna Sevilla og tel þá sigurstranglegasta," sagði Schuster.

„Þetta lið hefur spilað saman í tvö ár og það hefur sitt að segja. Milan verður aldrei þreytt á að vinna titla," sagði Schuster.

Hann telur að Liverpool sé einnig líklegt til afreka. „Liverpool spilar alls ekki áhorfendavænan fótbolta. En leikmenn liðsins eru harðir í horn að taka og sýndu það gegn Barcelona að þeir eru mjög erfiðir viðureignar," sagði Schuster.

Hann er mikill aðdáandi enska boltans. „Ef ég ætti að búa til sterkasta lið heims myndi ég taka varnarleik Chelsea og sóknarleik Manchester United. Leikaðferð Sevilla heillar mig einnig mikið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×