Fótbolti

AC Milan meistarar meistaranna

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Filippo Inzaghi sést hér skora mark sitt í kvöld.
Filippo Inzaghi sést hér skora mark sitt í kvöld. NordicPhotos/GettyImages

AC Milan sigraði í kvöld Sevilla í viðureign Evrópumeistara meistaraliða og Evrópumeistara félagsliða með þremur mörkum gegn einu. Þetta er í fimmta sinn sem að AC Milan vinnur þennan titil.

Sevilla byrjaði betur og komst yfir á 14. mínútu með skallamarki frá Renato. Leikmenn Sevilla fögnuðu markinu með því að safnast saman og benda til himins og tileinkuðu markið þannig Antonio Puerta sem lést fyrr í vikunni.

Filippo Inzaghi jafnaði leikinn fyrir AC Milan á 55. mínútu með fínu marki og Marek Jankulovski bætti við öðru á 62. mínútu. Það var svo Brasilíumaðurinn Kaká sem gulltryggði sigurinn á 87. mínútu þegar hann náði fráskastinu eftir að markvörður Sevilla varði frá honum vítaspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×