Fótbolti

Platini vill að bikarmeistarar komist í Meistaradeildina

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Forseti Evrópska knattspyrnusambandsins, Michel Platini, ætlar að leggja fram tillögu þess efnis að í stað þess að fjögur efstu lið stærstu deilda Evrópu komist í Meistardeildina muni þrjú efstu liðin fara áfram auk sigurvegarana í FA bikarnum. Platini ætlar að leggja fram tillöguna í næstu viku áður en dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildarinar.

Verði þetta að veruleika gæti það orðið til þess að þau fjögur lið sem hafa einokað Meistaradeildina á Englendi gætu átt hættu á að missa af þátttökurétti í keppninni. En þegar litið er á tölfræðina hefur það aðeins tvisvar sinnum gerst að Manchester United, Arsenal, Chelsea og Liverpool hafi ekki unnið í FA bikarnum á síðustu nítján árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×