Innlent

Á flótta á nærunum einum

Tilkynnt var um allsberan mann á hlaupum á Bíldshöfða í nótt. Þegar lögreglan kom á vettvang kom að vísu í ljós að manngarmurinn var á nærunum. Hann hafði flúið leiguherbergi sitt eftir að þrír samlandar höfðu ráðist þar inn og barið hann. Hann var með skurð á höfði og bólginn. Á vettvangi komst lögreglan að því að mennirnir þrír höfðu gersamlega rústað tvö herbergi í húsinu. Þeir voru enn í nokkrum vígahug og voru vistaðir í fangaklefa í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×