Innlent

Reykingarbannið leiðir af sér drykkju utandyra

MYND/365

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nokkuð hafa borið á því eftir að reykingarbannið á veitingastöðum tók gildi 1. júní síðastliðinn að gestir taki með sér áfengi út og neyti utandyra. Lögreglan vill af þeim sökum vekja athygli á ákvæði 3. málsgreinar 19. greinar áfengislaga sem bannar með öllu að áfengi sem selt er á veitingastað sé borið þaðan út af gestum staðarins eða öðrum. Veitingar áfengis utandyra eru einungis heimilar að fengnu sérstöku leyfi og eru þau takmörkuð við ákveðin svæði utan við veitingastaði og jafnan einungis veitt til kl. 22.

"Samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald skal lögreglustjóri án fyrirvara eða aðvörunar stöðva leyfisskylda starfsemi þegar starfsemin fer út fyrir mörk og skilmála leyfis eða brýtur gegn ákvæðum laga."

"Verði lögregla þess áskynja að veitingamenn virði ekki ákvæði áfengislaga eða skilmála útgefinna leyfa mun það geta kallað á lokun og/eða refsingar samkvæmt áfengislögum, " segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×