Innlent

Heilbrigðisráðherra vill bjór í búðir

Heilbrigðisráðherra styður sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum. Þjóðin drekkur í dag tæplega þriðjungi meira en markmið heilbrigðisáætlunar stjórnvalda gerir ráð fyrir.

Sem óbreyttur þingmaður Sjálfstæðisflokksins barðist Guðlaugur Þór Þórðarson, núverandi heilbrigðisráðherra, fyrir því að fólk gæti keypt sér léttvín og bjór um leið og það verslar í matinn. Síðast talaði hann fyrir málinu í febrúar á þessu ári og var þá fyrsti flutningsmaður frumvarps sem fjórtán þingmenn í þremur flokkum stóðu að. Frumvarpið var hársbreidd frá því að komast í gegn. Allsherjarnefnd alþingis samþykkti málið - að undanskyldum fulltrúa Vinstri grænna. Í áliti nefndarinnar kom fram að hún teldi "eðlilegt að sala á vörum og þjónustu væri á hendi einkaaðila" og að með frumvarpinu væri "stigið lítið skref í þá átt að gera sölu á áfengi frjálsa eins og tíðkast víða í nágrannalöndunum." Svo virðist sem Vinstri grænir hafi tekist að kippa því út af dagskrá með því að hóta málþófi.

Þegar fréttastofa hafði samband við heilbrigðisráðherra í dag vildi hann ekki koma í viðtal. Hann sagði afstöðu sína hins vegar ekki hafa breyst í stóli ráðherra - en að hann myndi ekki beita sér fyrir framgangi þess innan ríkisstjórnarinnar.

Samkvæmt heilbrigðisáætlun stjórnvalda, sem gildir til 2010, er eitt af sjö forgangsverkefnum heilbrigðisyfirvalda að áfengisneysla verði ekki meiri en fimm lítrar af hreinu alkóhóli á hvern íbúa 15 ára og eldri. Vísað er til þess að árið 1998 drakk þjóðin rösklega fimm og hálfan lítra af hreinum vínanda. Heilbrigðisyfirvöld eru fjarri því að ná settu marki. Ári eftir að áætlunin tók gildi var neyslan komin heilan lítra fram yfir markmið stjórnvalda, upp í 6,53 lítra. Síðustu þrjú ár hefur neyslan aukist jafnt og þétt og var í fyrra komin í 7,2 lítra - og er þar með orðin rösklega þrjátíu prósent meiri en stjórnvöld höfðu óskað sér.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×