Innlent

Anheuser-Busch eignast 20% í Icelandic Glacial

Kristinn Hrafnsson skrifar

Bandaríski risinn á drykkjarvörumarkaði, Anheuser-Busch hefur eignast 20% í vatnsfyrirtæki Jóns Ólafssonar og sonar hans Kristjáns. Þeir reka átöppunarverksmiðju á lindarvatni í Þorlákshöfn og er vatnið markaðssett undir vörumerkinu Icelandic Glacial. Með samningnum tekur Anheuser-Busch einnig að sér að dreifa Icelandic Glacial um öll Bandaríkin, eins og Stöð 2 greindi frá í fréttum í gær. Tilkynnt var formlega um þennan samning nú í hádeginu í sameiginlegri tilkynningu fyrirtækjanna frá St. Louis og Þorlákshöfn.

Verið er að hefja byggingu nýrrar átöppunarverksmiðju fyrir Icelandic Glacial nálægt Þorlákshöfn sem getur náð í áföngum allt að 250 milljón lítra afkastagetu á ári.

Þessi samningur markar tímamót í útflutningi á íslensku drykkjarvatni enda tryggir hann greiðan aðgang að vaxandi og verðmætum markaði fyrir vatn í Bandaríkjunum. Sala á átöppuðu drykkjarvatni tókst um 9,5% á síðasta ári í Bandaríkjunum og var veltan meiri en 10 milljarðar bandaríkjadala eða 600 milljarðar króna.

Helsta vörumerki Anheuser-Busch er Budweiser bjórinn og hefur fyrirtækið um það bil helmings markaðshlutdeild á Bandarískum bjórmarkaði. Velta Anheuser-Busch er jafnvirði ríflega þúsund milljarðar króna sem er nálægt þjóðarframleiðslu Íslendinga. Heildarvirði fyrirtækisins er 2250 milljarðar samkvæmt hlutabréfagengi í Bandarísku Kauphöllinni í New York í dag en þetta er álíka fjárhæð og Rio Tinto hefur boðið í ALCAN álfyrirtækið.

Í tilkynningu frá Icelandic Glacial og Anheuser-Busch er ekki gefið upp hversu mikið greitt er fyrir þann hlut sem Bandaríkjamenn eignast nú í Icelandic Water Holding sem á og rekur átöppunarverksmiðjuna í Þorlákshöfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×