Innlent

Utanríkisráðherra hittir Shimon Peres á morgun

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra MYND/365

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hélt í gær í vinnuferð til Mið-Austurlanda. Ferðinni er heitið til Ísraels, á heimastjórnarsvæði Palestínumanna og til Jórdaníu.

Tilgangur ferðarinnar er þríþættur. Að sjá og heyra um aðstæður á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna og í Ísrael, að kynnast viðhorfum stjórnvalda og fleiri á svæðinu til öryggis- og friðarhorfa og að kynnast flóttamannavanda Íraks frá fyrstu hendi í Jórdaníu.

Ísraelsheimsóknin er í boði Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels. Í frétt um heimsóknina á vefsíðu ísraelska utanríkisráðuneytisins segir að áhugi Íslendinga tengist framboðinu til sætis í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 2009-2010.

Í dag skoðar Ingibjörg Sólrún aðstæður í norðurhluta Ísraels. Á morgun mun hún eiga fund með Shimon Peres, nýkjörnum forseta Ísraels, auk fundar með utanríkisráðherra og öðrum ísraelskum ráðamönnum. Síðar í vikunni mun Ingibjörg eiga fundi með ráðamönnum á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna.



Auk þess er verulegur hluti ferðarinnar helgaður heimsóknum og viðræðum við félagasamtök og almenna borgara.

Svavar Gestsson sendiherra Íslands gagnvart Ísrael er með í för auk aðstoðarmanns ráðherra og sérfræðinga ráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×