Innlent

Alvarlegt umferðarslys varð við Gjábakka í dag

Alvarlegt umferðarslys varð á Gjábakkavegi skammt frá Þingvöllum um eittleytið í dag. Kallað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar þar sem óttast var að kona sem í slysinu lenti hefði innvortis blæðingar. Þyrlan fór með hana á Landsspítalann í Fossvogi. Ekki er vitað um ástand hennar að svo stöddu.

Slysið bar að garði á þann hátt að tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu á hvorum öðrum. Fimm erlendir ferðamenn voru í öðrum bílnum og ein íslensk kona í hinum. Hún var flutt með þyrlu á Landsspítalann í Fossvogi. Tveir ferðamannanna slösuðust einnig og þurfti bílstjórinn á áfallahjálp að halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×