Innlent

Slökkviliðið biður fólk að fara varlega með eld

Slökkvilið Borgarness var kallað út tvisvar í nótt vegna sinuelda og tókst í báðum tilvikum að slökkva áður en eldurinn næði útbreiðslu. Allur jarðvegur á svæðinu er mjög þurr og eldfimur og báða sinueldana má rekja til kæruleysis ferðamanna. Slökkviliðið hvetur fólk því til þess að fara varlega með allan eld á svæðinu. Annar eldurinn kviknaði út frá grilli sem skilið var eftir og hinn útfrá sígarettu sem einhver hafði kastað frá sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×