Innlent

Naust Íslendings reist með Smithsonian í Reykjanesbæ

Í dag, 13. júli kl. 15,00, var undirritaður samningur milli Íslendings ehf og Spangar ehf um byggingu skála Íslendings. og sýningar því tengdu, m.a. í samstarfi við Smithsonian. Skv. samningi þessum tekur verktaki að sér að byggja og fullgera húsið og jafna lóð við skálann.

Tilboð voru opnuð í 960 m2 sýningarhús og skála fyrir Íslending þann 6. júní s.l. Alls bárust 3 tilboð sem öll voru töluvert yfir kostnaðaráætlun sem var 240.328.780 kr. Nú hefur verið samið við byggingarfyrirtækið Spöng ehf um að taka að sér verkið á grundvelli kostnaðaráætlunar.

Hús Íslendings rís á uppfyllingu við Fitjatjarnir í Njarðvík og verður það allt hið glæsilegasta og mun setja mikinn svip á umhverfið. Í tengslum við naust Íslendings er mikið landsvæði sem nú þegar er verið að byggja upp undir Víkingaheima. Framkvæmdir hefjast nú þegar og er stefnt af opnun um mitt sumar 2008.

Fyrir hönd Íslendings ehf skrifaði framkvæmdarstjóri félagsins, Steinþór Jónsson, undir samninginn en eigandi Spangar, Sigurbjörn Haraldsson, skrifaði undir fyrir þeirra hönd. Stefnt er að því að svæðið verði eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna í Reykjanesbæ, og myndi um leið eitt af fjórum helstu kennileitum Bláa Demantsins á Reykjanesi.

Arkitekt hússins er Guðmundur Jónsson en Teiknistofan Óðinstorgi hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×