Innlent

Markvörður í lögregluyfirheyrslu í hálfleik

Beitir Ólafsson, fyrirliði og markvörður 3. deildarliðsins Ýmir, var í sviðsljósinu í Fagralundi í gær. Í fyrri hálfleik varði hann vítaspyrnu eftir að hafa lent í samstuði við leikmann KB. Við samstuðið rotaðist leikmaður KB og þurfti að fara á brott með sjúkrabíl. Í hálfleik var svo lögreglan mætt á svæðið og yfirheyrði Beiti vegna atviksins. Eftir yfirheyrslur hélt leikurinn áfram og Beitir stóð sem áður í marki Ýmismanna.

Maðurinn sem rotaðist jafnaði sig fljótlega og var mættur í Fagralund í leikslok. Ýmir sigraði leikinn 4-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×