Innlent

Enn varað við skemmdum á Þingvallavegi

Enn er varað við skemmdum á klæðningu á 1,5 km kafla á Þingvallavegi, við Grafningsvegamót. Bifhjólamenn eru sérstaklega varaðir við skemmdunum og er hraði takmarkaður við 50 km. Einnig eru vegfarendur beðnir um að sýna varúð við akstur um hálendið, sérstaklega við óbrúaðar ár.

Vegfarendur eru minntir á að kanna straum, dýpt og botngerð áður en farið er yfir vatnsföll. Hafa þarf í huga að vatnsmagn í jökulám vex eftir því sem líður á daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×