Innlent

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhaldsúrskurð

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp fyrir nokkrum dögum, yfir síbrotamanni. Ekki eru nema níu dagar síðan að sami Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð sama Héraðsdóms um framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir sama manni, sem þá sat í gæsluvarðhaldi, þannig að honum var sleppt lausum fyrir níu dögum.

Hann hóf þegar fyrri iðju og var fyrir nokkrum dögum úrskurðaður í gæsluvarðhald á ný, sem Hæstiréttur fellst nú á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×