Innlent

Um 4.000 manns sáu TOTO í gær

Um fjögur þúsund manns mættu á tónleika hljómsveitarinnar TOTO í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hljómsveitin lauk þar með tónleikaferð sem farin var til að fylgja eftir nýjustu plötu sveitarinnar „Falling In Between". TOTO á þrjátíu ára feril að baki og hefur selt yfir 25 milljónir platna sem innhalda til dæmis lög eins og Rosanna, Georgy Porgy, Hold the line og Africa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×