Innlent

Ökumaður undir áhrifum fíkniefna

Ökumaður, sem ók bíl sínum á miklum hraða aftan á annan bíl á Strandvegi í Grafarvogi síðdegis í gær, reyndist vera vankaður af fíkniefnaneyslu og er hann enn í haldi lögreglu.

Hann og átján ára stúlka, sem var farþegi í bílnum, meiddust lítilsháttar en fólkið í hinum bílnum slapp ómeitt. Því var hinsvegar svo brugðið að það þáði áfallahjálp. Lögregla lýsir eftir vitnum að atvikinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×