Innlent

Þrír umsækjendur eru um Sauðárkróksprestakall

Þrír umsækjendur eru um Sauðárkróksprestakall sem auglýst var laust til umsóknar nýlega. Umsóknarfrestur rann út 5. júlí og embættið verður veitt frá 1. ágúst. Kirkjumálaráðherra veitir það að fenginni umsögn valnefndar. Í valnefnd sitja níu fulltrúar prestakallsins auk prófasts og vígslubiskupsins á Hólum.

Umsækjendur eru:

Hildur Inga Rúnarsdóttir, guðfræðingur.

Sigríður Gunnarsdóttir, prestur.

Sólveig Jónsdóttir, guðfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×