Innlent

Reyk lagði um Smárabíó

Reyk tók að leggja um Smárabíó á tólfta tímanum í gærkvöldi og gripu slökkvilið og lögregla til þess ráðs að rýma Smáralindina. Jafnframt var fjölmennu slökkviliði stefnt á staðinn.

Í ljós kom að rafall í ljósabúnaði hafði brunnið yfir án þess að eldur breiddist út og var hættuástandi þá aflétt. Ekkert tjón hlaust af reyk, en rafallinn er ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×