Innlent

6 km ljósmyndalabb

Sex kílómetra ljósmyndalabb verður í boði fyrir gesti og heimamenn á Eskifirði í sumar. Sýningin er óvenjuleg því gömlum ljósmyndum er komið fyrir í námunda við þann stað sem myndirnar voru teknar.

Þrjátíu ljósmyndir eru á sýningunni, þær elstu frá því um 1880 en sú yngsta tæplega fertug. Á gangi um þorpið verður því hægt að líta inn í einskonar glugga til fortíðar. Aðstandendur segja aðsóknina mælda í því hversu oft þeir eru stöðvaðir úti á götu og krafnir nánari útlistana á efni myndanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×