Fótbolti

Capello sagður á förum frá Real

MYND/Getty Images

Spænska blaðið Marca fullyrðir í dag að þjálfari Spánarmeistara Real Madrid, Ítalinn Fabio Capello, hafi verið rekinn úr starfi. Hermt er að Pedja Mijatovic, íþróttamálastjóri félagsins, hafi þegar tjáð aðstoðarmanni Capellos að krafta hans sé ekki lengur óskað en Capello er nú í fríi í Kína.

Capello tók við Real Madrid í fyrra og stýrði liðinu til sigurs í deildarkeppninni á Spáni í vor, en það var fyrsti titill félagsins í fjögur ár. Það virðist hins vegar ekki hafa nægt stjórnendum konungsliðsins sem hittast munu á fundi í dag og ákveða framhaldið.

Reiknað er með að Þjóðverjinn Bernd Schuster, sem lék með Real á árum áður og er nú þjálfari Getafe, taki við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×