Innlent

Garðyrkjubændur ættu að fá sama og Norðurál

Garðyrkjubændur ættu að taka upp viðræður við orkusala í kjölfar tíðinda af orkuverði til Norðuráls vegna tilvonandi álvers í Helguvík. Þetta segir garðyrkjuráðunautur Bændasamtaka Íslands. Forstjóri Orkuveitunnar staðfestir að verðið til Norðuráls sé nærri tveimur komma einni krónu á kílóvattstund.

Orkuverð til álfyrirtækja hefur lengi verið hulið leynd og margir gagnrýnt það harkalega. Einu vísbendingarnar sem hönd hafa verið á festandi bárust fyrir sléttu ári þegar fréttir bárust af viðtali í Brasilíu við forstjóra Alcoa sem sagði fyrirtækið greiða 15 dali fyrir megavattstundina hér. Landsvirkjun sagði þá tölu alranga.

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, staðfesti í dag við fréttastofu að talan, 2,1 króna fyrir kílóvattstundina, sem birtist í fréttablaðinu í dag, sé ekki fjarri lagi og gæti einhvern tímann á 25 ára samningstímabilinu verið rétt en orkuverð er bæði háð dollar og álverði.

Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitunnar, segir samninginn með þeim hagstæðari sem Orkuveitan hefur gert við álfyrirtæki.

Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, sem hefur unnið að því að fá netþjónabú Microsoft til Íslands, segir að ef þetta orkuverð byðist Microsoft þá væri það mjög samkeppnishæft og myndi ekki vinna gegn Íslandi sem nú er meðal 8-10 landa sem keppa um netþjónabú fyrirtæksins

Dagur B. Eggertsson segir ný fyrirtæki koma að máli við stjórnvöld í hverri viku, í leit að grænni orku.

Garðyrkjubændur greiða uppundir tvöfalt meira fyrir rafmagnið en fyrirhugað álver, eða 3,5 til fjórar krónur að meðaltali. Garðyrkjuráðunautur Bændasamtakanna vill að þeir fái sama verð og Norðurál og segir að það myndi efla samkeppnisstöðu garðyrkjubænda gríðarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×