Innlent

Hustler leitar fanga hjá þingmönnum

Larry Flint sést hér faðmi fagurra meyja.
Larry Flint sést hér faðmi fagurra meyja. MYND/

Tímaritið Hustler hefur ákveðið að verða sér út um góða sögu í Washington D.C. og er tilbúið að borga eina milljón dollara fyrir hana. Sagan þarf þó að vera kynlífssaga og að tengjast einhverjum háttsettum sem vinnur í eða við bandaríska þingið.

Larry Flint, eigandi Hustler, stóð fyrir sams konar keppni árið 1998.Þá lá Bill Clinton undir ámæli fyrir að hafa leikið sér með Monicu Lewinsky. Flint reyndi þá sérstaklega að hneppa repúblikana í vef sinn. Ekki er vitað hvort að einhver ástæða sé að baki keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×