Fótbolti

Seedorf: Stoltur af liðinu

Clarence Seedorf
Clarence Seedorf NordicPhotos/GettyImages

Hollenski miðjumaðurinn Clarence Seedorf hjá AC Milan vann í kvöld sinn fjórða sigur á ferlinum í Meistaradeildinni. Hann sagðist stoltur af því að vera partur af frábæru liði eins og Milan.

"Ég er gríðarlega stoltur af að vera partur af þessu liði. Við lögðum mjög hart að okkur í ár - sem var mjög erfitt ár. Menn uppskera ef þeir leggja hart að sér og það var frábær andi í liðinu í ár. Úrslitaleikurinn í kvöld var ekki besti leikur okkar, en við héldum einbeitingu og það kom í veg fyrir að við gerðum dýr mistök," sagði Seedorf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×