Fótbolti

AC Milan er Evrópumeistari 2007

AC Milan frá Ítalíu fagnaði í kvöld sigri í Meistaradeild Evrópu með 2-1 sigri á Liverpool í úrslitaleik keppninnar í Aþenu í Grikklandi. Markahrókurinn Pippo Inzaghi kom Milan á bragðið á lokaandartökum fyrri hálfleiks þegar aukaspyrna Andrea Pirlo hrökk af höndinni á honum og í netið.

Inzaghi var svo aftur á ferðinni á 82. mínútu þegar hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörnina frá Kaka og renndi boltanum framhjá Reina í marki Liverpool. Enska liðið lagði þá allt kapp á sóknina og Dirk Kuyt minnkaði muninn með góðum skalla á 89. mínútu, en lengra komst liðið ekki og sjöundi Evrópumeistaratitill AC Milan staðreynd.

Í myndbandinu sem fylgir fréttinni má sjá og heyra sérfræðinga Sýnar í þættinum Meistaradeildin með Guðna Bergs fara yfir færin og mörkin í leiknum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×