Fótbolti

Crouch: Carragher er enn að stríða Lampard

Jamie Carragher stríddi leikmönnum Chelsea mikið eftir að Liverpool varð Evrópumeistari árið 2005
Jamie Carragher stríddi leikmönnum Chelsea mikið eftir að Liverpool varð Evrópumeistari árið 2005 NordicPhotos/GettyImages

Peter Crouch, framherji Liverpool, segir að Jamie Carragher hafi strítt Chelsea-mönnunum í enska landsliðinu mikið eftir að Liverpool varð Evrópumeistari árið 2005. Hann vonast til að geta gert hið sama þegar enska landsliðið kemur saman fyrir leikinn gegn Brasilíumönnum þann 1. júní.

"Ég var á ferðalagi með enska landsliðinu eftir úrslitaleikinn 2005 og horfði á leikinn með nokkrum af strákunum úr Chelsea og ég held að þeir hafi ekki viljað að Liverpool hefði sigur þó ég hafi gert það. Ég man líka að menn voru mikið að stríða hver öðrum og sérstaklega frá Jamie Carragher. Hann er sérstaklega leiðinlegur við Frank Lampard. Ég vona að ég fái tækifæri til að stríða leikmönnum Chelsea þegar við hittumst með landsliðinu, en þó ég verði ánægðasti maðurinn í hópnum ef svo verður og vilji kannski stríða Chelsea-stráknum - á eflaust enginn eftir að gera meira af því en Carragher," sagði Crouch í samtali við The Sun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×