Kjörsókn meiri í Norðausturkjördæmi Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 12. maí 2007 16:52 Kjósendur í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. MYND/GVA
Kjörsókn hefur gengið vel víðsvegar um landið en er heldur minni en fyrir fjórum árum ef undan er skilið Norðausturkjördæmi. Þar er kjörsókn umtalsvert meiri á Egilsstöðum og á Akureyri en í síðustu kosningum. Í Reykjavík höfðu 34.839 kosið klukkan fjögur eða 39,97 prósent þeirra sem eru á kjörskrá. Í Reykjavík norður höfðu 16.561 mætt á kjörstað, eða 37,83 prósent. Heldur meiri kjörsókn var í Reykjavík Suður eða 42.12 prósent. Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi var 33,2 prósent klukkan þrjú og höfðu rúmlega 18 þúsund manns mætt á kjörstað. Þetta er töluvert minna en í síðustu Alþingiskosningum þegar 37,6 prósent höfðu greitt atkvæði á sama tíma. Í Suðurkjördæmi höfðu 9813 manns kosið klukkan þrjú eða 32,21 prósent. Laust fyrir klukkan hálf fimm höfðu 43 prósent kosið á Egilsstöðum og svipaða sögu var að segja frá Akureyri. Þetta er umtalsvert meiri kjörsókn en í síðustu kosningum og hefur bætt í eftir því sem liðið hefur á daginn. Vel hefur gengið á kjörstöðum þó heldur hafi þrengt að fólki á Akureyri þegar mest hefur verið um manninn. Klukkan þrjú höfðu rétt rúmlega 40 prósent kosningabærra manna kosið í Norðvesturkjördæmi. 8500 manns höfðu þá greitt sín atkvæði og er það heldur minni kjörsókn en á sama tíma fyrir fjórum árum.
Kosningar 2007 Mest lesið Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Innlent Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Innlent Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Innlent Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Erlent Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Innlent „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Innlent „Ég ætti að vera dauður“ Erlent Fleiri fréttir Betlari til leiðinda í miðbænum Síbrotamaður dæmdur og Siggi stormur svarar fyrir spána „Hættan fyrir vinnandi fólk er raunveruleg“ Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Bókanir undir væntingum en ekki hægt að tala um hrun Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax Íslendingur fannst látinn á Spáni Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld „Þung skref“ að höfða mál gegn máttarstólpa Kourani, banatilræði við Trump og efnhagsmálin Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Tekjur mestar í Vestmannaeyjum og minnstar í Tjörneshreppi Of lítið fjármagn til viðhalds hafi kostað mannslíf Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Ungir menn sem veðja stjórnlaust hafi varann á Stúlkan er fundin Morðtilræði gegn Trump, úrslitaleikur EM og fjárhættuspil „Það er allt búið að vera á floti hérna“ Hjólreiðamaður með opið beinbrot í Þórsmörk Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna Tveimur vísað úr Þórsmörk eftir líkamsárás „Það hefur í raun og veru ekkert sumar komið hjá okkur“ Leysingar hugsanleg orsök E.coli bakteríu Sjá meira