Fótbolti

Ancelotti: United er betra lið en Liverpool

NordicPhotos/GettyImages
Carlo Ancelotti þjálfari Milan var kátur með sigur sinna manna á Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld. Nú getur Milan náð fram hefndum á Liverpool eftir hrunið í Istanbul fyrir tveimur árum.

 "Þetta var sannkallað draumakvöld. Það er draumur fyrir þjálfara að horfa upp á liðið sitt spila eins og mínir menn gerðu í fyrri hálfleiknum í kvöld - það var fullkominn fótbolti. Úrslitaleikurinn verður frábær áskorun - Liverpool er að vísu ekki jafn gott lið og Manchester United, en þeir eru sterkari og spila fastari bolta," sagði Ancelotti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×