Fótbolti

Benitez: Get ekki beðið um meira

NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var að vanda ánægður með leik sinna manna í gærkvöldi þegar liðið lagði Chelsea í Meistaradeildinni og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Hann vildi ekki ræða stríð sitt við Jose Mourinho frekar, heldur kaus að njóta sigursins.

"Ég get ekki beðið um meira frá mínum mönnum. Chelsea er með frábæra sóknarlínu og það er afar erfitt ða halda aftur af þeim. Okkur tókst það í kvöld og liðið spilaði vel - vel stutt af frábærum áhorfendum," sagði Benitez og vildi ekki ræða sálfræðistríðið við Mourinho frekar.

"Ég vil helst bara hrósa liði mínu og njóta þessa sigurs. Við erum að fara í úrslitaleikinn aftur. Okkur fannst sem við værum með uppskriftina af því að vinna Chelsea og það tókst. Ég er afar stoltur af mínum mönnum," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×