Fótbolti

Kaka: Okkur varð hugsað til Roma-leiksins

Kaka fagnar öðru marka sinna á Old Trafford í kvöld
Kaka fagnar öðru marka sinna á Old Trafford í kvöld AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan sagði að sér hafi verið hugsað til leiks Manchester United og Roma þegar heimamenn skoruðu fyrsta markið eftir aðeins fimm mínútur í leiknum í kvöld. Hann vonast til þess að stuðningur áhorfenda nægi til að koma liði Milan í úrslitaleikinn.

"Það var mikilvægt að skora tvö mörk á útivelli en leikurinn fór á versta veg fyrir okkur úr því sem komið var. Nú verðum við að eiga góðan leik á San Siro í síðari leiknum til að komast áfram og ég trúi að við getum það með hjálp stuðningsmanna okkar. Ég neita því ekki að mér datt í hug leikur Manchester United og Roma þegar þeir komust í 1-0 strax í byrjun," sagði Kaka og átti þar við 7-1 stórsigur United í síðustu umferð.

Carlo Ancelotti þjálfari var ekki sáttur við niðurstöðuna og sagði sína menn hafa kastað frá sér hagstæðum úrslitum. "Við gáfum þeim sigurinn því við spiluðum ágætlega í 60 mínútur. Við erum samt í betri málum nú en eftir fyrri leikinn við Bayern Munchen, svo ég hef ekki stórar áhyggjur," sagði Ancelotti og sagðist vonast til þess að Gennaro Gattuso yrði búinn að ná sér af meiðslum sínum fyrir síðari leikinn 2. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×