Fótbolti

Milan leiðir í hálfleik á Old Trafford

Kaka hefur verið heimamönnum erfiður í fyrri hálfleik
Kaka hefur verið heimamönnum erfiður í fyrri hálfleik NordicPhotos/GettyImages
AC Milan hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Manchester United í fyrri leik liðanna á Old Trafford í Manchester. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum og komust í 1-0 eftir fimm mínútur þegar markvörðurinn Dida sló boltann í eigið net. Það var svo Brasilíumaðurinn Kaka sem stal senunni fyrir gestina og kom liði sínu í 2-1 með mörkum á 22. og 37. mínútu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×