Fótbolti

Maldini verður ekki settur til höfuðs Ronaldo

Cristiano Ronaldo verður ekki tekinn úr umferð í leiknum gegn AC Milan annað kvöld.
Cristiano Ronaldo verður ekki tekinn úr umferð í leiknum gegn AC Milan annað kvöld. MYND/Getty

Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, hefur ekki í hyggju að breyta leikskipulagi sínu út af vananum til að halda sem mest aftur af Cristiano Ronaldo, leikmanni Manchester United, í fyrri viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu á morgun. Orðrómur hafði verið um að fyrirliðinn Paulo Maldini yrði settur í vinstri bakvörðinn til höfuðs Ronaldo, en Ancelotti segir svo ekki vera.

"Ronaldo er stöðugt að skipta á milli hægri og vinstri vængsins en Paulo Maldini spilar sem miðvörður í mínu liði," sagði Ancelotti í dag til að taka allan vafa af vangaveltum um liðsuppstillingu sína.

Haft er eftir Rafa Benitez, stjóra Liverpool, í slúðurblaðinu The Sun í dag að besta ráðið til að stöðva Ronaldo sé að setja öflugan og fljótan varnarmann honum til höfuðs og taka hann hreinlega úr umferð. "Serginho er of sókndjarfur, Kaladze er of hægur og ég held að Jankulovski henti heldur ekki. Maldini er besti kosturinn," segir Benitez.

Leikurinn á morgun fer fram á Old Trafford og notaði Ancelotti tækifærið er að hann ræddi við enska blaðamenn í dag og reyndi hvað hann gat til að draga úr mikilvægi leiksins.

"Ég held að úrslitin í þessu einvígi ráðist ekki fyrr en á San Siro í síðari leiknum. Leikurinn hér á Old Trafford verður ekki eins mikilvægur og síðari leiknum. Við erum afslappaðir í undirbúningi okkar fyrir þennan leik og vitum að Man. Utd. á við nokkur vandamál að stríða, en ég held að það skipti litlu máli. Svona leikir vinnast með ákveðni og einbeitingu," sagði ítalski stjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×