Fótbolti

Shevchenko vill frekar mæta Milan

AP

Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea segist heldur vilja mæta AC Milan en Manchester United ef Chelsea nær að vinna sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu. Svo gæti farið að Manchester United og Chelsea spiluðu þrjá úrslitaleiki á hálfum mánuði í vor.

"Við erum í harðri baráttu við Manchester United á öllum vígstöðvum í vor og erum þegar á slást við þá í deild og bikar hér á Englandi. Ég hef þegar sagt að ég vilji frekar mæta Milan en United í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni, en slíkt tal er enn ótímabært þar sem við eigum mjög erfiða leiki fyrir höndum í undanúrslitunum," sagði Shevchenko.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×