Innlent

ESSO verður N1

Olíufélagið Esso og Bílanaust heita nú eftir sameininguna N1. Hermann Guðmundsson forstjóri N1, segir nafnið hafa orðið fyrir valinu til að undirstrika þann metnað fyrirtækisins að vera í forystu hvað varðar góða þjónustu við bíleigendur, fólk á ferðinni og fyrirtækin í landinu.

„Nafnið er einfalt og skemmtilegt og hentar vel fyrir félag sem ætlar að sækja fram með nýjar hugmyndir og nýjar áherslur. Við erum ekki lengur olíufélag, heldur alhliða verslunar- og þjónustufyrirtæki,“ segir Hermann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×