Innlent

Námsmenn fá frítt í strætó

Námsmenn fá frítt í strætó frá og með næsta hausti.
Námsmenn fá frítt í strætó frá og með næsta hausti. Gunnar V. Andrésson
Stjórn Stúdentaráðs samþykkti í dag ályktun þar sem nýrri vistvænni áætlun Reykjavíkurborgar er fagnað. Ráðið telur ályktunina mikið framfaraskref og fagnar sérstaklega þeim tíðindum að næsta haust fái reykvískir námsmenn frítt í strætó. Stjórn SHÍ skorar á borgarstjórn að hafa frítt í strætó fyrir námsmenn til frambúðar. Jafnframt skora þeir á hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að taka sér Reykjavíkurborg til fyrirmyndar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×